16 Því að svo elskaði Guð heiminn að hann gaf einkason sinn til þess að hver sem trúir á hann glatist ekki, heldur eignist eilíft líf. 17 Guð sendi ekki son sinn til jarðarinnar til að dæma heiminn, heldur til að frelsa hann.
18 Sá sem trúir á hann verður ekki dæmdur. En sá sem ekki trúir, hefur sjálfur kallað yfir sig dóm og er þegar dæmdur fyrir að vilja ekki trúa syni Guðs.