3 „Ég segi þér satt, Nikódemus," sagði Jesús, „ef þú endurfæðist ekki muntu aldrei komast inn í guðsríki."
4 „Endurfæðist?" spurði Nikódemus, „hvað er nú það? Hvernig getur gamall maður komist aftur inn í kvið móður sinnar og fæðst að nýju?"
5 „Það sem ég á við," svaraði Jesús, „er þetta: Ef maðurinn fæðist ekki af vatni og anda, getur hann ekki komist inn í guðsríki.