Sonur embættismanns hlýtur lækningu
46,47 Á leið sinni um Galíleu kom Jesús til Kana, bæjarins þar sem hann hafði áður breytt vatninu í vín. Meðan hann var þar frétti embættismaður nokkur, sem bjó í Kapernaum, að Jesús væri kominn frá Júdeu. Sonur þessa manns var veikur og því fór faðirinn til Kana til að finna Jesú. Hann sárbað Jesú að koma með sér til Kapernaum og lækna son sinn, sem var nær dauða en lífi.
48 Jesús spurði hann: „Hvers vegna er það, getið þið ekki trúað nema þið fáið stöðugt að sjá ný kraftaverk?"
49 En embættismaðurinn bað hann og sagði: „Herra, komdu áður en barnið mitt deyr!"
50 Þá sagði Jesús: „Farðu heim til þín, sonur þinn lifir:" Maðurinn trúði honum og lagði af stað heim. 51 Á leiðinni mætti hann einum þjóna sinna, sem sagði honum þær gleðifréttir að syni hans væri batnað. 52 Þá spurði maðurinn hvenær honum hefði farið að batna og svarið var: „Um eittleytið í gær fór hitinn skyndilega úr honum!" 53 Þá mundi faðirinn að það var einmitt á þeirri stundu sem Jesús hafði sagt við hann: „Sonur þinn lifir." Þetta varð til þess að embættismaðurinn og allt hans heimafólk tók trú á Jesú.
54 Þetta var annað kraftaverkið sem Jesús vann í Galíleu, en það gerði hann við heimkomuna frá Júdeu.