Trúarleiðtogarnir óánægðir með lækningu
1 Seinna fór Jesús aftur til Jerúsalem til að vera þar á trúarhátíð. 2 Inni í borginni rétt við Sauðahliðið var Betesdalaugin og við hana fimm yfirbyggð súlnagöng. 3 Þar lá mikill fjöldi af veiku fólki – lömuðu, blindu eða bækluðu. (Fólk þetta beið eftir vissri hreyfingu vatnsins, 4 því að engill Drottins kom af og til og hreyfði við því, og sá læknaðist sem fyrstur komst ofan í eftir það.)
5 Þarna lá maður sem verið hafði veikur í þrjátíu og átta ár. 6 Þegar Jesús sá hann og vissi hve lengi hann hafði verið veikur, spurði hann: „Viltu verða heilbrigður?"
7 „Það er útilokað," svaraði maðurinn, „ég hef engan til að hjálpa mér ofan í laugina þegar hreyfing verður á vatninu og þess vegna verður alltaf einhver annar á undan mér."
8 Þá sagði Jesús: „Stattu upp, vefðu saman dýnuna þína og farðu heim til þín!"
9 Maðurinn varð heilbrigður á samri stundu! Hann vafði saman dýnuna og gekk.
Þetta gerðist á helgidegi