Publicidade

João 5

21 Hann mun meðal annars vekja upp frá dauðum þá sem hann vill, rétt eins og faðirinn. 22 Faðirinn lætur soninn um dæma syndina, 23 svo allir heiðri soninn eins og þeir heiðra föðurinn. Ef þið viljið ekki heiðra son Guðs, sem Guð sendi ykkur, þá heiðrið þið ekki heldur föðurinn.

24 Ég segi ykkur satt og legg á það áherslu, hver sem heyrir orð mín og trúir Guði, sem sendi mig, eignast eilíft líf og mun aldrei hljóta dóm fyrir syndir sínar, heldur hefur hann þá þegar stigið yfir frá dauðanum til lífsins. 25 Og það er líka satt stund kemur, hún er reyndar þegar komin, er hinir dauðu heyra rödd mína rödd Guðssonarins og þeir sem heyra munu lifa. 26 Faðirinn hefur eilíft líf í sjálfum sér og hann hefur einnig veitt syninum sama líf. 27 Og hann hefur veitt honum rétt til dæma syndir allra manna, því hann er mannssonurinn. 28 Látið það ekki koma ykkur á óvart, en stund er svo sannarlega skammt undan, er allir hinir dauðu, sem í gröfunum eru, munu heyra rödd Guðssonarins 29 og rísa upp. Þeir sem gott hafa gert til eilífs lífs, en þeir til dóms, sem lagt hafa stund á hið illa.

30 Ég dæmi engan án þess ráðfæra mig fyrst við föður minn. Dómur minn er í fullu samræmi við hans vilja, réttvís og sanngjarn, því hann er ekki aðeins samkvæmt mínum vilja heldur einnig samkvæmt vilja Guðs sem sendi mig.

31 Þegar ég fullyrði eitthvað um sjálfan mig, trúið þið mér ekki,

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-