Pular para o conteúdo
Publicidade

João 6

Jesús mettar fimm þúsundir

1 Eftir þetta fór Jesús til landsvæðisins hinum megin Galíleuvatnsins, sem kennt er við Tíberías, 2-5 og fylgdi honum gífurlegur mannfjöldi. Margt af þessu fólki var pílagrímar á leið til Jerúsalem á páskahátíðina, en það langaði til sjá Jesú lækna hina sjúku og því fylgdi það honum hvert fótmál.

Jesús gekk upp á fjallið ásamt lærisveinum sínum og settist, og þá mannfjöldinn var koma.

Hann sneri sér Filippusi og sagði: Filippus, hvar getum við keypt brauð til gefa fólkinu borða?" 6 (Jesús hafði ákveðið með sjálfum sér hvað hann ætlaði gera, en með þessu var hann reyna Filippus.)

7 Filippus svaraði: Þótt við keyptum ekki nema handa hluta þeirra, mundi það kosta mikla peninga!"

8,9 Þá sagði Andrés, bróðir Símonar Péturs: Hér er ungur drengur með fimm byggbrauð og tvo fiska, en það dugar vísu skammt handa öllum þessum fjölda."

10 Látið fólkið setjast niður," sagði Jesús. Þá settist allt fólkið niður í grasigróna brekkuna og voru karlmennirnir einir um fimm þúsund. 11 Því næst tók hann brauðin, flutti þakkarbæn og skipti þeim meðal fólksins, og fengu allir eins mikið og þeir vildu.

12 Þegar allir höfðu borðað nægju sína sagði Jesús: Tínið saman leifarnar svo ekkert fari til spillis." 13 Það var gert og afgangs urðu tólf sneisafullar körfur!

14 Þegar fólkinu varð ljóst hvílíkt kraftaverk hafði gerst hrópaði það: Hann er áreiðanlega spámaðurinn, sem við höfum beðið eftir!"

Veja também