18,19 En á leiðinni hvessti skyndilega svo vatnið varð mjög úfið. Þeir höfðu róið um sex kílómetra þegar þeir sáu Jesú koma gangandi í átt til sín. Þeir urðu skelkaðir, 20 en þá kallaði hann til þeirra og sagði: „Verið óhræddir, þetta er ég!" 21 Þeir tóku hann upp í bátinn og um leið sáu þeir að þeir voru komnir þangað sem þeir ætluðu sér.