44 „Enginn getur komið til mín, nema faðirinn, sem sendi mig, leiði hann og á efsta degi mun ég reisa hann upp frá dauðum. 45 Svo segir Biblían um þá: „Guð mun sjálfur fræða þá." Þeir sem hlusta á föðurinn og læra sannleikann hjá honum, munu dragast að mér. 46 Ekki svo að skilja að þeir sjái föðurinn í raun og veru, ég er sá eini sem það hef gert.
47 Ég segi ykkur satt: „Hver sem trúir á mig, mun þegar í stað eignast eilíft líf!"