2-5 og fylgdi honum gífurlegur mannfjöldi. Margt af þessu fólki var pílagrímar á leið til Jerúsalem á páskahátíðina, en það langaði til að sjá Jesú lækna hina sjúku og því fylgdi það honum hvert fótmál.
Jesús gekk upp á fjallið ásamt lærisveinum sínum og settist, og sá þá að mannfjöldinn var að koma.
Hann sneri sér að Filippusi og sagði: „Filippus, hvar getum við keypt brauð til að gefa fólkinu að borða?"