2-5 og fylgdi honum gífurlegur mannfjöldi. Margt af þessu fólki var pílagrímar á leið til Jerúsalem á páskahátíðina, en það langaði til að sjá Jesú lækna hina sjúku og því fylgdi það honum hvert fótmál.
Jesús gekk upp á fjallið ásamt lærisveinum sínum og settist, og sá þá að mannfjöldinn var að koma.
Hann sneri sér að Filippusi og sagði: „Filippus, hvar getum við keypt brauð til að gefa fólkinu að borða?" 6 (Jesús hafði ákveðið með sjálfum sér hvað hann ætlaði að gera, en með þessu var hann að reyna Filippus.)
7 Filippus svaraði: „Þótt við keyptum ekki nema handa hluta þeirra, mundi það kosta mikla peninga!"