53 Jesús sagði því aftur: „Ég segi ykkur satt og legg á það áherslu: Þið getið ekki átt eilíft líf í ykkur, nema þið etið hold Krists og drekkið blóð hans. 54 Sá sem etur hold mitt og drekkur blóð mitt hefur eilíft líf, og ég mun vekja hann upp á efsta degi. 55 Hold mitt er sönn fæða og blóð mitt sannur drykkur. 56 Hver sem etur hold mitt og drekkur blóð mitt, er í mér og ég í honum. 57 Ég lifi í krafti föðurins, hans sem lifir, og á sama hátt munu þeir lifa sem hlutdeild eiga í mér. 58 Ég er hið sanna brauð sem kom niður af himni og hver sem etur þetta brauð, mun lifa að eilífu en ekki deyja eins og forfeður ykkar, sem átu brauð frá himni."
Publicidade