6 (Jesús hafði ákveðið með sjálfum sér hvað hann ætlaði að gera, en með þessu var hann að reyna Filippus.)
7 Filippus svaraði: „Þótt við keyptum ekki nema handa hluta þeirra, mundi það kosta mikla peninga!"
8,9 Þá sagði Andrés, bróðir Símonar Péturs: „Hér er ungur drengur með fimm byggbrauð og tvo fiska, en það dugar að vísu skammt handa öllum þessum fjölda."
10 „Látið fólkið setjast niður," sagði Jesús. Þá settist allt fólkið niður í grasigróna brekkuna og voru karlmennirnir einir um fimm þúsund. 11 Því næst tók hann brauðin, flutti þakkarbæn og skipti þeim meðal fólksins, og fengu allir eins mikið og þeir vildu.
12 Þegar allir höfðu borðað nægju sína sagði Jesús: „Tínið nú saman leifarnar svo að ekkert fari til spillis." 13 Það var gert og afgangs urðu tólf sneisafullar körfur!