Publicidade

João 7

14 Þegar hátíðin var hálfnuð gekk Jesús inn í musterið og predikaði opinberlega. 15 Leiðtogar þjóðarinnar undruðust orð hans og spurðu: „Hvaðan hefur hann þessa þekkingu? Hann hefur aldrei gengið í skóla hjá okkur."

16 Jesús sagði þá við þá: „Ég kenni ekki eigin hugmyndir, heldur orð Guðs sem sendi mig. 17 Ef einhver ykkar vill gera vilja Guðs í raun og veru, þá mun hann örugglega sjá hvort boðskapur minn er frá Guði eða frá sjálfum mér. 18 Sá sem talar af sjálfum sér vonast eftir hrósi, en sá sem heiðrar þann sem sendi hann, er trúr og sannur.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-22_10-02-25-