3 Bræður Jesú hvöttu hann til að fara til Júdeu á hátíðina og sögðu ertnislega:
„Farðu þangað, því að þá geta miklu fleiri séð kraftaverk þín. 4 Þú verður ekki frægur af því að fela þig. Og fyrst þú ert svona mikill, skaltu reyna að sanna það fyrir heiminum!" 5 Bræður Jesú trúðu sem sagt ekki á hann.