30,31 Eftir þessi orð Jesú, trúðu margir leiðtoganna að hann væri Kristur.
Jesús sagði við þá: „Ef þið farið eftir orðum mínum, þá eruð þið sannir lærisveinar mínir, 32 og þið munuð þekkja sannleikann og sannleikurinn mun gera ykkur frjálsa."
33 „En við erum afkomendur Abrahams," sögðu þeir, „og við höfum aldrei verið þrælar nokkurs manns. Hvað áttu við með orðinu „frjáls"?"
34 „Þið eruð allir þrælar syndarinnar," svaraði Jesús. 35 „Þrælar hafa engin réttindi, en sonurinn hefur öll réttindi. 36 Ef sonurinn gerir ykkur frjálsa verðið þið sannarlega frjálsir.