18 Leiðtogar Gyðinga vildu ekki trúa því að maðurinn hefði verið blindur og sendu því eftir foreldrum hans, 19 og spurðu: „Er þetta sonur ykkar? Fæddist hann blindur? Og ef svo er, hvernig hefur hann þá fengið sjónina?"
20 „Við vitum að hann er sonur okkar og að hann fæddist blindur," svöruðu foreldrar hans, 21 „en við vitum ekki hver gaf honum sjónina, spyrjið hann sjálfan, hann ætti að vera nógu gamall til að svara fyrir sig."
22,23 Þetta sögðu þau af ótta við leiðtogana, en þeir höfðu sagt að hver sá sem segði að Jesús væri Kristur, fengi ekki að sækja guðsþjónustur.