Jesús kallar til sín lærisveina
16 Dag einn er Jesús gekk fram með Galíleuvatninu sá hann bræðurna Símon og Andrés, þeir voru fiskimenn og voru einmitt þessa stundina að leggja netin.
17 Jesús kallaði til þeirra og sagði: „Komið og fylgið mér. Ég skal kenna ykkur að veiða menn!" 18 Þá yfirgáfu þeir netin og fóru með honum.
19 Í öðrum bát, skammt frá, voru synir Sebedeusar, Jakob og Jóhannes, að bæta net sín. 20 Hann kallaði einnig á þá og þeir skildu Sebedeus og verkamennina eftir í bátnum og fóru á eftir honum.