40 Eitt sinn kom holdsveikur maður, kraup frammi fyrir honum og bað um lækningu. „Þú getur læknað mig ef þú vilt," sagði hann biðjandi. 41 Jesús fann til með honum, snerti hann og sagði: „Ég vil það! Læknist þú!" 42 Samstundis hvarf holdsveikin og maðurinn varð heilbrigður.