28 Þá tók Pétur að telja upp allt sem hann og lærisveinarnir hefðu yfirgefið og sagði síðan: „Við höfum yfirgefið allt og fylgt þér…"
29 Jesús svaraði: „Ég fullvissa ykkur um að hver sá sem yfirgefur allt – heimili, bræður, systur, móður, föður, börn eða eignir – af kærleika til mín og til að geta flutt öðrum gleðiboðskapinn, mun fá sín laun. 30 Honum verður launað hundraðfalt! Heimili, bræður, systur, mæður, börn og land – og ofsóknir. Allt þetta mun hann fá á jörðu og auk þess eilíft líf í hinum komandi heimi. 31 Þá mun lítið verða úr mörgum sem nú telja sig mikla, en margir sem nú eru fyrirlitnir, munu þar hljóta virðingu."