4 Þeir svöruðu: „Hann sagði að það væri ekkert við það að athuga. Það eina, sem maðurinn þyrfti að gera, væri að afhenda konu sinni skilnaðarbréf. Það væri allt og sumt."
5 „Ég skal segja ykkur hvers vegna hann sagði þetta," sagði Jesús. „Það var tilslökun vegna illsku ykkar, 6,7 því þannig hafði Guð ekki hugsað sér það. Í upphafi skapaði hann karl og konu og hann ætlaði þeim að lifa saman alla ævi í hjónabandinu. Karlmaðurinn á því að yfirgefa föður og móður, 8 og búa með eiginkonu sinni, svo að þau verði ekki lengur tvö heldur eitt. 9 Það sem Guð hefur sameinað, má enginn maður sundur skilja."