46 Þeir komu til Jeríkó. Síðar, þegar þeir voru að fara þaðan aftur, fylgdi honum mikill mannfjöldi. Við veginn sat blindur betlari, Bartímeus, sonur Tímeusar.
47 Þegar Bartímeus heyrði að Jesús frá Nasaret færi þar, tók hann að hrópa og kalla: „Jesús, sonur Davíðs, miskunnaðu mér!"
48 Margir skipuðu honum að þegja, en það varð til þess að hann hrópaði enn ákafar: „Sonur Davíðs, miskunnaðu mér!"
49 Þegar Jesús heyrði hrópin, nam hann staðar og sagði: „Segið honum að koma." Þeir kölluðu því á blinda manninn og sögðu: „Þú ert heppinn! Hann sagði þér að koma." 50 Bartímeus henti af sér yfirhöfninni, stökk á fætur og flýtti sér til Jesú.
51 „Hvað viltu að ég geri fyrir þig?" spurði Jesús. „Meistari," sagði blindi maðurinn, „mig langar að fá sjónina!"
52 „Bæn þín er heyrð," sagði Jesús. „Trú þín hefur læknað þig." Samstundis fékk blindi maðurinn sjónina og fylgdi Jesú áleiðis.