Pular para o conteúdo
Publicidade

Marcos 11

Haldið inn í Jerúsalem

1 Þegar þeir komu til Betfage og Betaníu, sem eru smáþorp við Olíufjallið, skammt frá Jerúsalem, sendi Jesús tvo lærisveina sinna á undan sér.

2 Farið í þorpið þarna á móti," sagði hann. Þegar þið komið þangað, munuð þið finna ösnufola sem enginn hefur komið á bak. Leysið hann og færið mér. 3 Ef einhver spyr hvers vegna þið gerið þetta, skuluð þið segja: Meistari okkar þarf á honum halda, en hann skilar honum fljótt aftur"."

4,5 Mennirnir tveir fóru og fundu folann bundinn hjá húsi nokkru við eina götuna. Meðan þeir voru leysa hann, spurðu menn sem þar voru: Hvers vegna leysið þið folann?"

6 Þeir svöruðu eins og Jesús hafði sagt þeim gera og þá leyfðu mennirnir þeim taka hann.

7 Síðan fóru þeir með folann til Jesú. Lærisveinarnir lögðu yfirhafnir sínar á hann og Jesús settist á bak. 8 Margir í mannþyrpingunni lögðu yfirhafnir sínar á veginn þar sem Jesús fór, en aðrir lögðu laufgaðar greinar og strá sem þeir höfðu skorið af ökrunum.

9 Athygli allra beindist Jesú og fólkið gekk í hópum á undan og eftir og hrópaði: Blessaður konungurinn, sem kemur í nafni Drottins!"

10 Lofaður Guð, því hann endurreisir konungdóm Davíðs" Lengi lifi Drottinn himnanna!"

11 Þegar Jesús var kominn til Jerúsalem, fór hann inn í musterið, gekk um og virti allt gaumgæfilega fyrir sér. Um kvöldið fór hann út til Betaníu ásamt lærisveinunum tólf og gisti þar.

Veja também