20 Morguninn eftir, þegar þeir gengu framhjá fíkjutrénu, sáu þeir að það hafði visnað frá rótum. 21 Þá minntist Pétur þess sem Jesús hafði sagt við tréð daginn áður og hrópaði: „Sjáðu, meistari! Fíkjutréð, sem þú formæltir, er visnað!"
22,23 „Ég segi ykkur satt," sagði Jesús. „Ef þið trúið á Guð, þá getið þið sagt við Olíufjallið: „Upp með þig og steypstu í hafið" og það mundi hlýða. Skilyrðið er trú sem ekki efast um mátt Guðs. 24 Og takið nú eftir! Þið getið beðið um hvað sem er og ef þið trúið, þá fáið þið það! 25 En áður en þið biðjið, fyrirgefið þá þeim sem þið hafið gert eitthvað á móti, svo að faðirinn á himnum geti fyrirgefið ykkur syndir ykkar."