12 Á fyrsta degi páskahátíðarinnar, þegar lömbunum var slátrað, spurðu lærisveinar Jesú hann hvar hann ætlaði að neyta páskamáltíðarinnar.
26 Síðan sungu þeir sálm og að því búnu fóru þeir út til Olíufjallsins.
32 Þeir komu í garð sem heitir Getsemane og þar sagði Jesús við lærisveinana: „Setjist hérna og bíðið meðan ég fer og biðst fyrir."
43 Áður en hann hafði sleppt orðinu, kom Júdas (einn af lærisveinum hans) með hóp manna vopnaða sverðum og kylfum. Menn þessa höfðu æðstu prestarnir og aðrir leiðtogar þjóðarinnar sent.
46 Og þeir lögðu hendur á Jesú og tóku hann.