61 Jesús svaraði honum ekki einu orði. Þá spurði æðsti presturinn: „Ert þú Kristur, sonur Guðs?"
62 Jesús svaraði: „Já, það er ég og þú munt sjá mig sitja við hægri hönd Guðs og birtast öllum mönnum í skýjum himinsins."
63,64 Þá reif æðsti presturinn föt sín og hrópaði: „Þurfum við framar vitnanna við! Þið heyrðuð sjálfir guðlastið. Hvað finnst ykkur?" Og þeir dæmdu hann til dauða einum rómi.