Pular para o conteúdo
Publicidade

Markús 15:42-46

42,43 Atburðir þessir áttu sér stað daginn fyrir helgidaginn. Síðdegis þennan sama dag herti Jósef frá Arímaþeu upp hugann og fór til Pílatusar og bað um líkama Jesú. Jósef þessi var virtur meðlimur hæstaréttar og trúaður maður (sem sjálfur vænti komu guðsríkisins). 44 En Pílatus trúði ekki að Jesús væri þá þegar dáinn og lét því kalla á liðsforingjann, sem sá um aftökuna, og spurði hann. 45 Liðsforinginn staðfesti að Jesús væri dáinn og gaf þá Pílatus Jósef leyfi til að taka líkið.

46 Jósef keypti langan léreftsdúk, tók líkama Jesú niður af krossinum og vafði hann í dúkinn. Síðan lagði hann líkið í gröf sem höggvin hafði verið í klett og velti steini fyrir dyrnar.

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.