1 Meðan Jesús var í Kapernaum fór hann aftur í samkomuhúsið. Þar tók hann eftir manni með bæklaða hönd. 2 Þetta var á helgidegi og því fylgdust óvinir Jesú nákvæmlega með honum. Skyldi hann lækna manninn? Ef svo færi, þá ætluðu þeir að kæra hann.
3 Jesús bað manninn að koma og standa frammi fyrir söfnuðinum. 4 Síðan sneri hann sér að óvinum sínum og spurði: „Er leyfilegt að vinna gott verk á helgidegi? Eða er þessi dagur til illverka? Hvort má frekar bjarga lífi eða deyða?" 5 Jesús horfði reiðilega á þá, því honum blöskraði miskunnarleysi þeirra gagnvart mannlegri neyð. Síðan sagði hann við manninn: „Réttu fram hönd þína." Maðurinn gerði svo og um leið varð hönd hans heilbrigð!