Pular para o conteúdo
Publicidade

Marcos 3

1 Meðan Jesús var í Kapernaum fór hann aftur í samkomuhúsið. Þar tók hann eftir manni með bæklaða hönd. 2 Þetta var á helgidegi og því fylgdust óvinir Jesú nákvæmlega með honum. Skyldi hann lækna manninn? Ef svo færi, þá ætluðu þeir kæra hann.

3 Jesús bað manninn koma og standa frammi fyrir söfnuðinum. 4 Síðan sneri hann sér óvinum sínum og spurði: Er leyfilegt vinna gott verk á helgidegi? Eða er þessi dagur til illverka? Hvort frekar bjarga lífi eða deyða?" 5 Jesús horfði reiðilega á þá, því honum blöskraði miskunnarleysi þeirra gagnvart mannlegri neyð. Síðan sagði hann við manninn: Réttu fram hönd þína." Maðurinn gerði svo og um leið varð hönd hans heilbrigð! 6 Farísearnir fóru þá til fundar við Heródesarsinnana, því þeir ætluðu í sameiningu finna ráð til taka Jesú af lífi. 7,8 Jesús fór þá ásamt lærisveinunum niður vatninu. Gífurlegur fjöldi fylgdi honum úr allri Galíleu, Júdeu, Jerúsalem, Ídúmeu, frá landsvæðunum handan Jórdanárinnar og jafnvel alla leið frá Týrus og Sídon. Ástæðan var fréttir af kraftaverkum hans höfðu borist víða og margir vildu sjá hann með eigin augum. 9 Jesús sagði lærisveinunum hafa smábát til taks handa sér, sem hann gæti farið út í er fólkið tæki þrengja honum. 10 Hann hafði læknað marga þennan dag og því dreif fjölda sjúklinga, sem reyndi snerta hann.

11 Þegar þeir sem haldnir voru illum anda, sáu hann, féllu þeir til jarðar við fætur hans og æptu: Þú ert sonur Guðs." 12 Þá skipaði hann öndunum segja engum hver hann væri.

Fleiri samverkamenn

13-15 Næsta dag fór Jesús upp í fjalllendið og boðaði þangað til sín vissa menn úr lærisveinahópnum. Þegar þeir voru komnir valdi hann tólf úr hópnum til vera með sér, fara í predikunarferðir og reka út illa anda. 16-19 Þetta eru nöfn þeirra sem hann valdi: Símon (sem hann gaf nafnið Pétur), Jakob og Jóhannes (synir Sebedeusar, en þá kallaði Jesús þrumusynina"), Andrés, Filippus, Bartólómeus, Matteus, Tómas, Jakob Alfeusson, Taddeus, Símon (Selóti hann var í byltingarsinnuðum stjórnmálaflokki, sem aðhylltist byltingu gegn rómversku landstjórninni) og Júdas Ískaríot (sem síðar sveik hann).

20 Þegar Jesús kom aftur heim, tók fólkið þyrpast á og ekki leið á löngu uns gestirnir voru orðnir svo margir hann hafði ekki einu sinni næði til matast. 21 Þegar vinir hans heyrðu hvernig ástatt var, komu þeir og vildu hann með sér heim til sín. Hann er ekki með sjálfum sér." sögðu þeir.

Fyrirgefanleg synd

22 Fræðimenn þjóðarinnar, sem komnir voru frá Jerúsalem, sögðu: Vandi Jesús er , Satan, foringi illu andanna, er í honum og þess vegna hlýða illu andarnir honum."

23 Jesús kallaði þessa menn til sín og spurði með dæmi, sem allir skildu: Hvernig getur Satan rekið Satan út? 24 Sundrað ríki mun falla. 25 Heimili, þar sem hver höndin er upp á móti annarri, leysist upp. 26 Þar af leiðir ef Satan berst gegn sjálfum sér, þá fær hann ekki staðist og það er úti um hann. 27 Sterkan mann verður binda áður en hægt er ræna úr húsi hans (og eins verður binda Satan áður en hægt er reka þessa illu anda hans út). 28 Ég lýsi því yfir sérhverja þá synd, sem mennirnir kunna drýgja jafnvel lastmæli gegn mér er hægt fyrirgefa, 29 en last gegn heilögum anda verður aldrei fyrirgefið. Það er eilíf synd."

30 Þetta sagði hann þeim vegna þess þeir héldu því fram hann gerði kraftaverk í mætti Satans (í stað þess viðurkenna það væri fyrir kraft heilags anda).

31,32 Rétt í þessu komu móðir hans og bræður húsinu, sem þegar var fullt út úr dyrum. Þau sendu honum boð um koma út og tala við sig. Móðir þín og bræður eru úti og spyrja um þig," var sagt við hann. 33 Hver er móðir mín?" spurði hann. Og hverjir eru bræður mínir?" 34 Síðan leit hann á þá sem umhverfis hann voru og sagði: Þessir eru móðir mín og bræður. 35 Hver , sem gerir vilja Guðs, er bróðir minn, systir eða móðir."

Veja também