30 Síðan spurði Jesús: „Hverju líkist guðsríki? Hvaða dæmisögu eigum við að nota til að lýsa því? 31,32 Það er eins og örlítið sinnepsfræ! Þótt þetta fræ sé minnsta allra frækorna, þá vex upp af því jurt sem verður öllum jurtum stærri og ber langar greinar þar sem fuglarnir geta byggt hreiður sín og leitað skjóls."