37 Skyndilega gerði mikið rok og gaf mjög á bátinn, svo við lá að hann fyllti.
38 Jesús svaf í skutnum og hafði kodda undir höfðinu. Lærisveinarnir vöktu hann skelfingu lostnir og hrópuðu: „Meistari, sérðu ekki að við erum að farast?"
39 Þá hastaði Jesús á vindinn og sagði við vatnið: „Hafðu hægt um þig." Þá lygndi og allt varð kyrrt og hljótt!
40 Síðan sneri hann sér að þeim og spurði: „Hvers vegna voruð þið svona hræddir? Hafið þið ekki enn lært að treysta mér?"
41 Hræddir, en fullir lotningar, sögðu þeir hver við annan: „Hver er þessi maður? Bæði vindur og vatn hlýða honum."