Svínin deyja – en maðurinn lifir
1,2 Þeir komu að landi austan megin vatnsins. Þegar Jesús var að stíga upp úr bátnum, hljóp þar að maður, haldinn illum anda.
3,4 Hann hélt sig annars í og við grafirnar, og var slíkt heljarmenni að í hvert skipti sem hann var fjötraður – og það gerðist oft – sleit hann í sundur handjárnin, reif af sér hlekkina og fór sína leið. Enginn hafði afl til að yfirbuga hann. 5 Hann æddi nætur og daga æpandi um milli grafanna og út í auðnina, og risti sig til blóðs með hvössum steinum.
6 Maðurinn hafði séð til bátsins úti á vatninu. Hann kom hlaupandi til móts við Jesú og varpaði sér að fótum hans.
7,8 Jesús sagði þá við illa andann sem í manninum var: „Út með þig, illi andi." Andinn rak þá upp skelfilegt öskur og spurði: „Hvað ætlar þú að gera við okkur, Jesús, sonur hins æðsta Guðs? Við biðjum þig, láttu okkur ekki kveljast."
9 „Hvað heitir þú?" spurði Jesús. „Hersing." svaraði andinn, „því við erum margir í þessum manni."
10 Því næst báðu andarnir hann að senda sig ekki burt. 11 Meðan þetta gerðist var stór svínahjörð á beit í hlíðinni upp af vatninu. 12 „Sendu okkur í svínin þarna," báðu andarnir.
13 Jesús leyfði þeim það. Þá fóru andarnir úr manninum og í svínin. Við það tók öll hjörðin á rás og æddi niður bratta hlíðina, fram af klettunum og drukknaði í vatninu. 14 Svínahirðarnir flýðu til nærliggjandi bæja og sögðu, á hlaupunum, frá því sem gerst hafði. Fjöldi fólks þusti þá af stað til að sjá þetta með eigin augum. 15 Og þegar fólkið sá manninn sitja þar, klæddan og með fullu viti, varð það hrætt. 16 Þeir sem vitni höfðu orðið að atburðinum, sögðu öðrum frá 17 og þegar fólkið hafði heyrt frásögnina, bað það Jesú að fara og láta sig í friði! 18 Jesús fór því aftur um borð í bátinn, en þá bað maðurinn, sem haft hafði illu andana, hann að leyfa sér að koma með, 19 en Jesús leyfði það ekki. „Farðu heim til þín og þinna," sagði hann; „og segðu þeim hve mikið Guð hefur gert fyrir þig, og hversu hann hefur miskunnað þér."
20 Maðurinn fór því til þorpanna tíu þar í héraðinu og sagði öllum frá þeim stórkostlegu hlutum sem Jesús hafði gert fyrir hann, og undruðust það allir.