22 Jaírus, forstöðumaður samkomuhúss staðarins, kom þangað, laut honum, 23 og bað hann heitt og innilega að lækna litlu dóttur sína.
„Hún er að deyja," sagði hann, angistarfullur. „Gerðu það fyrir mig að koma og leggja hendur þínar yfir hana, svo að hún lifi og verði heilbrigð."
24 Jesús fór með honum og allt fólkið fylgdi á eftir.