35 Meðan hann var að tala við hana, kom sendiboði frá heimili Jaírusar. Hann sagði að nú væri allt orðið um seinan – stúlkan væri dáin og tilgangslaust að láta Jesú koma úr þessu. 36 En Jesús lét sem hann heyrði þetta ekki og sagði við Jaírus: „Vertu ekki hræddur. Trúðu á mig og treystu mér."
37 Jesús bað nú mannfjöldann að nema staðar og leyfði engum að fara með sér inn í hús Jaírusar, nema Pétri, Jakobi og Jóhannesi. 38 Þegar inn kom sá Jesús að allt var þar í uppnámi, fólkið grét og kveinaði. 39 Hann sagði við það: „Hvað á allur þessi grátur og hávaði að þýða? Barnið er ekki dáið, það sefur." 40 Þá hló fólkið að honum, en hann skipaði því að fara út og tók síðan með sér lærisveinana þrjá og foreldra stúlkunnar og fór inn til hennar.
41,42 Hann tók í höndina á barninu og sagði: „Stúlka litla, rís þú upp." Jafnskjótt reis hún á fætur og fór að ganga um gólfið! (Hún var tólf ára). Foreldrar hennar urðu frá sér numdir af gleði. 43 Jesús lagði áherslu á að þau segðu þetta engum og bað þau síðan að gefa henni eitthvað að borða.