38 Þegar inn kom sá Jesús að allt var þar í uppnámi, fólkið grét og kveinaði. 39 Hann sagði við það: „Hvað á allur þessi grátur og hávaði að þýða? Barnið er ekki dáið, það sefur." 40 Þá hló fólkið að honum, en hann skipaði því að fara út og tók síðan með sér lærisveinana þrjá og foreldra stúlkunnar og fór inn til hennar.
41,42 Hann tók í höndina á barninu og sagði: „Stúlka litla, rís þú upp." Jafnskjótt reis hún á fætur og fór að ganga um gólfið! (Hún var tólf ára). Foreldrar hennar urðu frá sér numdir af gleði.