21 Loksins sá Heródías sér þó leik á borði. Það var á afmælisdegi Heródesar, en þá bauð hann hallarþjónum sínum og herforingjum, auk helstu fyrirmanna úr Galíleu, til veislu. 22,23 Dóttir Heródíasar kom þá inn í veislusalinn og dansaði fyrir gestina, öllum til mikillar ánægju. Þá sagði Heródes við stúlkuna: „Þú mátt óska þér hvers sem þú vilt og ég skal gefa þér það, jafnvel hálft konungsríkið."