2,3 Á helgideginum fór hann í samkomuhúsið til að kenna. Bæjarbúar undruðust visku hans og kraftaverk, því að hann var frá Nasaret eins og þeir. „Hvar hefur hann lært þetta?" spurði fólkið. „Hann er ekkert betri en við! Hann er bara smiður – sonur hennar Maríu, bróðir Jakobs, Jósefs, Júdasar og Símonar og systur hans búa líka hér í Nasaret." Og allir hneyksluðust á honum.