Pular para o conteúdo
Publicidade

Marcos 7

31 Frá Týrus fór Jesús til Sídonar og síðan til Dekapólis (þorpanna tíu) við Galíleuvatnið. 32 Þá var leiddur til hans maður sem bæði var heyrnarlaus og mállaus. Bað fólkið Jesú leggja hendur yfir hann og lækna hann.

33 Jesús fór með hann afsíðis, stakk fingrunum í eyru hans og vætti tungu hans með munnvatni sínu. 34 Síðan horfði hann upp til himins, andvarpaði og sagði: Opnist þú." 35 Um leið fékk maðurinn fulla heyrn og talaði skýrt!

36 Jesús bannaði fólkinu láta þetta fréttast, en því meir sem hann bannaði það, því meir var það borið út, 37 kraftaverkið hafði mikil áhrif á alla. Fólk sagði: Allt sem hann gerir er gott. Hann getur meira segja gefið heyrnarlausum heyrn og mállausum mál."

Veja também