9 Með þessu hafnið þið boðum Guðs og traðkið á þeim, til þess eins að gera eins og ykkur langar.
10 Móse sagði til dæmis: „Heiðraðu föður þinn og móður." Hann sagði einnig að hver sá er formælti foreldrum sínum væri dauðasekur. 11 Þið segið hins vegar að í lagi sé að menn sinni ekki þörfum foreldra sinna og segi við þau: „Mér þykir leitt að geta ekki hjálpað ykkur, en ég hef gefið Guði það sem ég annars hefði gefið ykkur." 12,13 Þannig brjótið þið boðorð Guðs til að geta hlýtt ykkar eigin mannaboðorðum. Þetta er aðeins eitt dæmi, en ég gæti nefnt mörg önnur."