1 Dag einn um þessar mundir safnaðist mikill mannfjöldi að honum og nú varð fólkið matarlaust á ný. Jesús kallaði þá saman lærisveinana til að ræða málið.
2 „Ég finn til með fólkinu," sagði hann. „Nú hefur það verið hér í þrjá daga og allur matur er upp urinn. 3 Ef ég sendi það heim matarlaust mun það örmagnast á leiðinni, því margir eiga langt heim."
4 „En er nokkurn mat að finna hér í óbyggðinni?" spurðu lærisveinarnir.
5 „Hvað eigið þið mörg brauð?" spurði hann. „Sjö," svöruðu þeir. 6 Þá sagði hann fólkinu að setjast niður. Síðan tók hann brauðin og þakkaði Guði. Hann braut þau í sundur, rétti lærisveinunum og þeir síðan fólkinu. 7 Þeir höfðu einnig nokkra smáfiska sem Jesús þakkaði líka fyrir og bað þá að tilreiða.
8,9 Allir viðstaddir borðuðu sig metta og að því búnu sendi hann þá heim. Þarna voru um fjögur þúsund manns og þegar leifunum hafði verið safnað saman eftir máltíðina, fylltu þær sjö stórar körfur!