Publicidade

Marcos 8

34 Síðan kallaði hann á lærisveinana og allt fólkið og sagði: „Vilji einhver fylgja mér, þá afneiti hann sjálfum sér, taki upp kross sinn og fylgi mér fast eftir, 35 því hver sá sem vill eiga líf sitt fyrir sjálfan sig, mun tapa því. Þeir einir, sem afneita sjálfum sér vegna mín og gleðiboðskaparins, munu kynnast lífinu í raun og veru.

36 Hvaða gagn er að því að eignast allan heiminn, ef maður týnir við það sálu sinni? 37 Er sál mannsins ekki það dýrmætasta sem hann á? 38 Þegar ég kem aftur í dýrð föðurins með heilögum englum, mun ég blygðast mín fyrir hvern þann sem blygðast sín fyrir mig og mín orð á þessum tímum syndar og vantrúar."

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-22_10-02-25-