17 „Meistari," sagði maður einn í hópnum, „ég kom hingað með son minn til að biðja þig að lækna hann – hann er mállaus, því illur andi er í honum.
22 Oft lætur andinn hann falla í eldstóna eða í vatn til að reyna að gera út af við hann. Ó, miskunnaðu okkur og gerðu eitthvað til að hjálpa okkur, ef þú getur."
23 „Ef ég get?" spurði Jesús, og síðan bætti hann við: „Ef þú trúir er allt mögulegt."
24 „Ég trúi," svaraði maðurinn, „en hjálpaðu mér svo ég eignist enn meiri trú."