30,31 Síðan fór hann burt þaðan og ferðaðist um Galíleu. Hann reyndi að forðast að vekja á sér athygli, svo að hann gæti eytt meiri tíma með lærisveinunum og kennt þeim. Hann sagði við þá: „Ég, Kristur, mun verða svikinn og deyddur en á þriðja degi mun ég rísa upp á ný."