Publicidade

Marcos 9

Jesús ummyndast

1 Jesús hélt áfram tala við lærisveina sína og sagði: Sumir ykkar, sem hér standa, munu lifa það sjá guðsríki vald Guðs og stjórn koma með miklum krafti."

2 Sex dögum síðar tók Jesús þá Pétur, Jakob og Jóhannes eina með sér upp á hátt fjall.

Skyndilega sáu þeir andlit hans sveipaðist dýrlegum ljóma 3 og föt hans urðu skínandi björt hvítari en nokkur föt geta orðið.

4 Síðan birtust Móse og Elía og fóru ræða við Jesú!

5 Meistari, þetta er stórkostlegt!" hrópaði Pétur. Við skulum reisa hér þrjú skýli, eitt handa þér, annað handa Móse og það þriðja handa Elía."

6 Þetta sagði hann bara til segja eitthvað, því hann vissi ekki hvað hann átti gera, og raunar voru þeir allir skelfingu lostnir.

7 En áður en Pétur hafði lokið við setninguna, kom ský yfir þá, sem skyggði á sólina, og þeir heyrðu rödd úr skýinu, sem sagði: Þessi er minn elskaði sonur. Hlustið á hann."

8 Er þeir litu í kring um sig, sáu þeir engan nema Jesú einan, Móse og Elía voru horfnir.

9 Á leiðinni niður af fjallinu bað hann þá segja engum frá því sem þeir höfðu séð, ekki fyrr en hann væri risinn upp frá dauðum. 10 Þeir þögðu því um þetta við aðra en ræddu það oft sín á milli og veltu þá fyrir sér hvað hann hefði átt við með orðunum risinn upp frá dauðum".

11 En þarna í fjallshlíðinni spurðu þeir hann um nokkuð sem trúarleiðtogar þjóðarinnar töluðu oft um, það fyrst yrði Elía koma (áður en Kristur gæti komið). 12,13 Jesús játti því Elía yrði koma á undan og ryðja brautina síðan bætti hann við: Hann er reyndar búinn koma! En það var farið hræðilega með hann, rétt eins og spámennirnir höfðu sagt fyrir." Síðan spurði hann þá hvað spámennirnir hefðu átt við er þeir spáðu Kristur ætti þjást og þola hina dýpstu niðurlægingu.

14 Við rætur fjallsins sáu þeir mikinn mannfjölda, sem safnast hafði umhverfis lærisveinana níu, sem orðið höfðu eftir. Þar voru nokkrir fræðimenn þrátta við þá. 15 Þegar Jesús nálgaðist, leit fólkið til hans með lotningu og hljóp til móts við hann til þess heilsa honum. 16 Um hvað eruð þið deila?" spurði Jesús.

17 Meistari," sagði maður einn í hópnum, ég kom hingað með son minn til biðja þig lækna hann hann er mállaus, því illur andi er í honum. 18 Þegar andinn hefur hann á valdi sínu, kastar hann honum niður svo hann froðufellir, gnístir tönnum og stífnar upp. Ég bað lærisveina þína reka þennan illa anda út en þeir gátu það ekki."

19 Þá sagði Jesús (við lærisveinana): Æ, lítil er trú ykkar, hversu lengi þarf ég vera með ykkur til þess þið trúið? Hversu lengi á ég umbera ykkur? Komið hingað með drenginn."

20 Þeir sóttu því drenginn, en þegar illi andinn Jesú, þá teygði hann drenginn sundur og saman svo hann féll til jarðar, veltist um og froðufelldi.

21 Hve lengi hefur þetta verið svona?" spurði Jesús föður hans.

Síðan hann var lítill. 22 Oft lætur andinn hann falla í eldstóna eða í vatn til reyna gera út af við hann. Ó, miskunnaðu okkur og gerðu eitthvað til hjálpa okkur, ef þú getur."

23 Ef ég get?" spurði Jesús, og síðan bætti hann við: Ef þú trúir er allt mögulegt."

24 Ég trúi," svaraði maðurinn, en hjálpaðu mér svo ég eignist enn meiri trú."

25 Mannfjöldinn þyrptist , en Jesús hastaði á illa andann og sagði: Þú andi heyrnarleysis og málleysis, ég skipa þér fara út af þessu barni og koma aldrei aftur."

26 Þá rak illi andinn upp hræðilegt org, teygði drenginn sundur og saman og fór út úr honum. Drengurinn hreyfingarlaus og virtist dáinn. Kliður fór um mannfjöldann Hann er dáinn, hann er dáinn." 27 En Jesús tók um hönd hans og hjálpaði honum á fætur. Og þarna stóð hann alheill! 28 Eftir á, þegar Jesús var orðinn einn með lærisveinunum innan dyra, spurðu þeir hann: Hvers vegna gátum við ekki rekið þennan illa anda út?"

29 Jesús svaraði og sagði: Við þessu dugar ekkert nema bæn."

30,31 Síðan fór hann burt þaðan og ferðaðist um Galíleu. Hann reyndi forðast vekja á sér athygli, svo hann gæti eytt meiri tíma með lærisveinunum og kennt þeim. Hann sagði við þá: Ég, Kristur, mun verða svikinn og deyddur en á þriðja degi mun ég rísa upp á ."

32 Þetta skildu þeir ekki og þorðu ekki spyrja hann við hvað hann ætti.

33 Þeir komu til Kapernaum og er þeir voru komnir þar inn í hús, spurði hann þá: Um hvað voruð þið ræða á leiðinni?"

34 Þeir þorðu ekki svara, því þeir höfðu verið þrátta um hver þeirra væri mestur.

35 Hann settist, kallaði þá til sín og sagði: sem vill verða mestur, hann verður vera minnstur; þjónn allra."

36 Síðan kallaði hann á lítið barn og setti það á meðal þeirra. því búnu tók hann það í fang sér og sagði: 37 Hver sem tekur á móti litlu barni eins og þessu, mín vegna, tekur á móti mér, og hver sem tekur á móti mér, tekur á móti föður mínum sem sendi mig."

Bannið það ekki!"

38 Dag einn sagði Jóhannes, einn af lærisveinum hans, við hann: Meistari, við sáum mann sem notaði nafn þitt til reka út illa anda. Við bönnuðum honum það, af því hann er ekki einn úr okkar hópi."

39 Það skuluð þið ekki gera," sagði Jesús, því enginn sem unnið hefur kraftaverk í mínu nafni, snýst gegn mér á eftir. 40 sem ekki er á móti okkur, hann er með okkur. 41 Ef einhver gefur ykkur eitthvað, þó ekki nema eitt vatnsglas, vegna þess þið tilheyrið mér þá skuluð þið vita hann mun sín laun. 42 En! ef einhver verður til þess einn af þessum smælingjum sem trúa á mig, glatar trúnni, væri betra fyrir þann mann vera fleygt í sjóinn, með stóran myllustein bundinn um hálsinn.

43,44 Ef hönd þín gerir rangt, þá er betra skera hana af og hafa aðeins aðra höndina og eignast eilíft líf, en hafa báðar og vera varpað í helvíti. 45,46 Ef fótur þinn leiðir þig á veg illskunnar, höggðu hann þá af! Betra er vera einfættur og eignast eilíft líf, en ganga á báðum fótum til helvítis. 47 Ef auga þitt teymir þig út í syndina, stingdu það þá úr! Betra er ganga hálfblindur inn í guðsríki, en hafa bæði augun og líta elda helvítis. 48 Þar mun ormurinn aldrei deyja og eldur ekki slokkna. 49 Þar eru allir eldi saltaðir!

50 Salt er gott, en ef það missir seltuna, þá er það gagnslaust. Gætið því missa ekki seltuna og haldið frið ykkar á milli."

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-29_22-07-56-