Pular para o conteúdo
Publicidade

Matteus 1

Ættartala Jesú Krists

1 Þessir eru forfeður Jesú Krists, afkomanda Davíðs konungs og Abrahams: 2 Abraham var faðir Ísaks. Ísak var faðir Jakobs. Jakob var faðir Júda og bræðra hans. 3 Júda var faðir Peresar og Sera (móðir þeirra hét Tamar). Peres var faðir Esroms. Esrom var faðir Rams, 4 en Ram var faðir Ammínadabs og sonur hans var Nakson. Nakson var faðir Salmons. 5 Salmon var faðir Bóasar (kona hans var Rut). Óbeð var faðir Ísaís, 6 en Ísaí faðir Davíðs konungs og Davíð faðir Salómons (móðir hans var ekkja Úría). 7 Salómon var faðir Róbóams og sonur hans var Abía. Abía var faðir Asafs. 8 Asaf var faðir Jósafats. Jósafat var faðir Jórams og Jóram faðir Ússía. 9 Ússía var faðir Jótams, en sonur hans var Akas og Esekía var sonur hans. 10 Esekía var faðir Manasse, en hann var faðir Amoss og Amos faðir Jósía. 11 Jósía var faðir Jekonja og bræðra hans (þeir fæddust í herleiðingunni til Babýlon).

12 Eftir herleiðinguna: Jekonja var faðir Sealtíels, Sealtíel var faðir Serúbabels, 13 Serúbabel faðir Abíúds og Abíúd faðir Eljakíms. Eljakím var faðir Asórs, 14 en sonur hans var Sadók. Og Sadók var faðir Akíms, Akím faðir Elíúds 15 og Elíúd faðir Eleasars. Eleasar var faðir Mattans, Mattan faðir Jakobs og 16 Jakob faðir Jósefs en hann var eiginmaður Maríu, móður Jesú Krists.

17 Þetta eru fjórtán ættliðir frá Abraham til Davíðs konungs, fjórtán ættliðir frá Davíð fram herleiðingunni og einnig fjórtán ættliðir frá herleiðingunni fram til Krists.

Veja também