20 Eitt sinn er hann var að íhuga þetta á andvökunóttu, sofnaði hann og dreymdi að engill stóð hjá honum og sagði:
„Jósef, sonur Davíðs, hikaðu ekki við að kvænast Maríu, því að barnið sem hún gengur með, er getið af heilögum anda. 21 Hún mun eignast son, og þú skalt láta hann heita Jesú (sem þýðir Guð frelsar), því að hann mun frelsa þjóð sína frá syndum hennar. 22 Þannig mun rætast það sem spámaður Guðs sagði: 23 „Takið eftir! Meyjan mun þunguð verða! Hún mun fæða son og hann verða kallaður „Immanúel" (en það þýðir Guð er með okkur)"."
24 Þegar Jósef vaknaði, ákvað hann að gera eins og engillinn hafði sagt honum og ganga að eiga Maríu, 25 þau höfðu þó ekki kynmök fyrr en eftir að sonurinn var fæddur. Og Jósef gaf drengnum nafnið Jesús.