Pular para o conteúdo
Publicidade

Matteus 10:26-31

26 Óttist ekki þá sem hafa í hótunum við ykkur, því að sannleikurinn mun koma í ljós.

27 Það sem ég segi ykkur í rökkrinu, skuluð þið kalla að morgni og það sem ég hvísla í eyru ykkar, skuluð þið hrópa á húsþökum!

Óttist Guð

28 Óttist ekki þá sem aðeins geta deytt líkama ykkar, en megna ekki að skaða sálina. Óttist Guð, því að hann getur tortímt sál og líkama í helvíti. 29 Vitið þið verðið á spörfuglum? Fást ekki tveir fyrir einn smápening? Ekki einn einasti þeirra fellur til jarðar án vitundar föður ykkar. 30 Hann veit meira að segja hve hárin eru mörg á höfði ykkar! 31 Verið því ekki kvíðafullir. Þið eruð dýrmætari í augum Guðs en margir spörfuglar.

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.