Viðvaranir
20 Þá tók hann að ávíta borgirnar, þar sem hann hafði gert flest kraftaverkin, því þær höfðu ekki snúið sér til Guðs. Hann sagði: 21 „Ég kalla dóm yfir þig Kórasín og þig Betsaída! Ef kraftaverk þau sem ég hef gert á strætum ykkar, hefðu gerst í Týrus og Sídon, þá hefðu þær fyrir löngu iðrast og auðmýkt sig. 22 Betur mun fara fyrir Týrus og Sídon á dómsdegi en ykkur. 23 Kapernaum, þér hlotnaðist mikill heiður, en þér verður eytt! Ef öll kraftaverkin, sem ég hef gert í þér, hefðu gerst í Sódómu, stæði hún enn í dag. 24 Því segi ég að betur mun fara fyrir Sódómu á degi dómsins en þér, Kapernaum!"