Publicidade

Mateus 11

Jóhannes skírari sendir menn til Jesú

1 Þegar Jesús hafði gefið lærisveinunum tólf þessi fyrirmæli hélt hann áfram ferðast um og predika í bæjum og þorpum.

2 Jóhannes skírari sat um þessar mundir í fangelsi. Þegar hann frétti af kraftaverkunum, sem Kristur vann, sendi hann lærisveina sína til hans til spyrja: 3 Ert þú í raun og veru sem við höfum beðið eftir, eða eigum við vænta annars?"

4 Jesús svaraði þeim og sagði: Farið og segið Jóhannesi frá kraftaverkunum sem þið hafið séð mig gera: 5 Ég hef læknað blinda og holdsveika, og þeir sem lamaðir voru ganga óstuddir. Heyrnarlausir heyra, dauðir lifna við og fátækum eru fluttar gleðifréttir. 6 Segið honum líka: Guð blessar þann sem dregur orð mín ekki í efa." "

7 Þegar lærisveinar Jóhannesar voru farnir, fór Jesús tala um hann við mannfjöldann og sagði: Hvað bjuggust þið við sjá þegar þið fóruð út í eyðimörkina til Jóhannesar? Strá, skekið af vindi? 8 Eða áttuð þið von á sjá mann klæddan konungsskrúða? 9 Eða spámann Guðs? , hann er meira en spámaður. 10 Hann er sem sagt var fyrir um í Biblíunni: boðberinn sem tilkynnti komu mína og bjó fólk undir taka á móti mér." 11 Ég segi ykkur satt: Enginn þeirra manna, sem enn hafa fæðst, jafnast á við Jóhannes skírara, þó eru hinir minnstu í himnaríki honum meiri! 12 Frá þeirri stundu er Jóhannes skírari hóf predika og skíra hafa menn viljað guðsríki undir sig með valdi. 13 Lög Móse og spámennirnir sögðu fyrir um þetta. Síðan kom Jóhannes og sagði það sama. 14 Ef þið viljið skilja mig rétt, þá er hann Elía sem spámennirnir sögðu koma mundi (áður en guðsríki kæmi).

15 Ef þið viljið hlusta, takið þá eftir því sem ég segi :

16 Hvað á ég segja um þessa þjóð? Hún er eins og börn leik, sem segja við félaga sína:

17 Við lékum brúðkaupslag, en þið glöddust ekki, þá lékum við sorgarlag, en samt grétuð þið ekki!"

18 Jóhannes skírari drakk ekki vín og fastaði oft. Þá sögðu menn: Hann er geðveikur!" 19 En ef ég, Kristur, tek þátt í veislum og drekk, þá er kvartað og ég kallaður átvagl, vínsvelgur og vinur stórsyndara! Slíkum vitringum finnst allt rétt sem þeir gera sjálfir!"

Viðvaranir

20 Þá tók hann ávíta borgirnar, þar sem hann hafði gert flest kraftaverkin, því þær höfðu ekki snúið sér til Guðs. Hann sagði: 21 Ég kalla dóm yfir þig Kórasín og þig Betsaída! Ef kraftaverk þau sem ég hef gert á strætum ykkar, hefðu gerst í Týrus og Sídon, þá hefðu þær fyrir löngu iðrast og auðmýkt sig. 22 Betur mun fara fyrir Týrus og Sídon á dómsdegi en ykkur. 23 Kapernaum, þér hlotnaðist mikill heiður, en þér verður eytt! Ef öll kraftaverkin, sem ég hef gert í þér, hefðu gerst í Sódómu, stæði hún enn í dag. 24 Því segi ég betur mun fara fyrir Sódómu á degi dómsins en þér, Kapernaum!"

Jesús býður hvíld og frið

25 Um þetta leyti bað Jesús þessarar bænar: Þökk þér, faðir, Drottinn himins og jarðar, þú hefur opinberað börnum það sem þú huldir spekingum og fræðimönnum. 26 , faðir, þannig vildir þú hafa það."

27 Faðir minn hefur falið mér gera allt sem ég geri. Faðirinn einn gjörþekkir soninn og sonurinn einn þekkir föðurinn, svo og þeir sem sonurinn hefur opinberað hann. 28 Komið til mín, allir þið sem erfiðið og berið þungar byrðar, og ég mun veita ykkur hvíld. 29,30 Takið á ykkur ok mitt og lærið af mér, ég er lítillátur og auðmjúkur. Þá munuð þið finna sálum ykkar hvíld. Mitt ok er indælt og byrði mín létt."

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-29_22-07-56-