10 Þar var staddur maður með bæklaða hönd. Farísearnir spurðu Jesú: „Er leyfilegt að lækna á hvíldardegi?" (Þeir vonuðu auðvitað að hann mundi svara „já" svo að þeir hefðu tilefni til að handtaka hann.) 11 Hann svaraði: „Ef einhver ætti aðeins eina kind og hún félli í skurð á helgidegi, mundi hann þá ekki leggja það á sig að bjarga henni þótt helgidagur væri? Auðvitað! 12 Og er maður ekki meira virði en sauðkind? Þar af leiðir: Það er leyfilegt að vinna góð verk á helgidegi." 13 Síðan sagði hann við manninn: „Réttu fram hönd þína." Maðurinn gerði það og um leið varð hönd hans heil!