12,13 „Þeim sem hefur" sagði hann, „mun verða gefið enn meira, en frá þeim sem ekkert á, mun jafnvel verða tekið það litla sem hann hefur. Ég nota þessar líkingar til að fólkið heyri og sjái, en skilji ekki. 14 Þannig rætast þessi orð Jesaja:
„Þeir heyra, en skilja ekki, þeir horfa, en sjá ekki. 15 Hugurinn er sljór og heyrnin dauf. Þeir sofa og sjá því hvorki né heyra það sem gæti veitt þeim skilning og leitt þá aftur til Guðs svo þeir hlytu lækningu."